Starfsmenn

Helstu viðskiptavinir

Helstu verkefni

 

Rafskoðun ehf. er faggilt, óháð skoðunarstofa á rafmagnssviði, stofnuð í september 1993, en rekstur stofunnar hófst í lok júní árið 1994.
Framkvæmdastjóri Rafskoðunar er Björn E. Baldursson.

Starfssvið stofunnar spannar skoðanir á há- og lágspennusviði, skoðun á öryggistjórnunarkerfum (gæðakerfum) rafveitna ásamt skoðun á öryggisstjórnunarkerfum rafverktaka, skv. staðlinum ÍST EN 45004:1995.

Skoðun er faglegt mat á hönnun virkja, frágangi þeirra og samsetningu eða þjónustu við þau til að ákvarða samræmi þeirra við kröfur gildandi laga og reglugerða.

Niðurstöður skoðunar eru birtar í skýrslu þar sem fram eru settar niðurstöður mælinga (einangrunarmæling, prófun á virkni lekastraumsrofa, o.fl.) og athugasemdir á ástandi viðkomandi raflagnar, ef einhverjar eru.
Rafskoðun hf - Hólmaslóð 4 - 101 Reykjavík
Sími: 551 4500 - Fax: 551 4520 - rafskodun@rafskodun.is